í lok ágúst..

ætla ég nú að skrifa svosem eina færslu áður en mánuðurinn ágúst 2008 er endanlega úti..

haustið hvæsir á okkur þessa dagana..hefði frekar vilja sjá það í blíðum andvara með kul í loftinu..en það eru svo mikil læti í því eitthvað núna..það lagast eflaust á næstunni..

mikil og annasöm vika er að baki..en tilfinningin að ganga út úr henni er góð..og ég ætla að ganga inn í þá næstu í eftirvæntingu um meira frá pabba mínum á himnum..hann segir að hann hafi fyrirbúið mér framtíð til heilla en ekki til óhamingju..

við hjónin sátum með góðum vinum okkar í brunch á föstudaginn og ræddum bænsvör sem við hrópum eftir inn í kringumstæður vitandi að guð segist aldrei koma of seint..en okkar "of seint" er nebblega allt öðru vísi en hans "of seint"..
mannlega séð kom hann allt of seint til lazarusar..hann var farinn að lykta..(alltaf gaman að heyra tedda vini minn segja frá þessu dæmi) samt var það ekki of seint séð frá guðs sjónarhorni..

sumsé..þessi hjón eru búin að vera að treysta guði fyrir ákveðnum hlut í allt vor og sumar og við með þeim..en ekkert var að gerast..frekar að versna og hlaða á sig vandamálum og veseni..hvar var guð?
en nú er svo komið að bænasvarið er í höfn og ekki bara það..heldur komu 2 bænasvör út frá þessu..annað sem er búið er að bíða enn lengur eftir..mörg ár! g
uð var að vinna verkið..hann snappar ekki fingrunum og búmm..bænasvarið er komið..hann vinnur í fólki og kringumstæðum til að útkoman verði sú besta sem völ er á frá hans hendi..og nú er það komiðrtil þeirra..umvafið í kærleika hans og miklu stærra en vonast var eftir..
það var þess virði að bíða..

svo töluðum við líka um hvernig guð notar þennan erfiða biðtíma til að víkka út hjörtu okkar og trú..færa okkur nær honum og upplifa mikilleika hans..en margir gefast upp hætta að treysta og fara á mis við að að vaxa og þroskast í honum..að víkka sjóndeildarhringinn andlega..

ég veit ekkert yndislegra en að sitja með fólki og ræða svona mál..maður verður svo uppörvaður og glaður..:) og guð verður enn stærri í lífi manns..

annars hefur verið mikið að gerast í lífum okkar..við höfum þarfnast guðs sérstaklega mikið og hann hefur umvafið okkur loforðum sinum og trúfesti..við höfum líka þarfnast vináttu og skilinings hjá fjölskyldu og vinum..það hefur verið misjafnt hvernig maður upplifir það..en andlit þeirra sem hafa blessað okkur og uppörvað eru skýr fyrir hugskotssjónum mínum..vinir sem rétta hjálparhönd..tala uppörvunarorð..vinir sem kalla mig hetju þegar mér finnst ég alls ekki vera það..vinir sem koma og slá garðinn..bjóða í bíltúr..hringja daglega til að vitja um líðan manns..vinir sem bara kíkja við til að sjá hvernig við höfum það og miðla af reynslu og gjöfum sínum..vinir sem gefa manni dekurpakka..vinir sem bjóða manni í mat..vinir sem koma með blóm til að gleðja..ég sé jesú í þeim öllum..
takk þið öll..

kannski er ég orðin svolítið væmin hér..en ég er bara svo þakklát..og væmni á sinn tíma líka..:)

það er gott að vera til..gott að finna lífið flæða um sig..finna jesú bærast í hjartanu..pabba brosa til manns og heilagan anda hvetja og umfaðma..að ég tali ekki um alla englana sem vernda okkur..

óver and át í bili..

sjón sem fékk mig til að brosa og kveikja á myndavélinni um daginn..:)


stúlkan og endurnar

lifðu í núinu..gleymdu forðtíðinni og hlakkaðu til framtíðarinnar..jer 29:11
30. ágúst 2008 klukkan 23:03
Árný Jóhanns
Gréta María skrifar ...
þetta var uppörvandi blogg fyrir mig.
Ég er nefninlega ekki alveg að skilja plön Guðs inn í okkar kringumstæður en ég veit að Hann veit hvað Hann er að gera og allt mun samverka til góðs og jafnvel betra en við höfðum vonast til. EN "núna" er erfitt að bíða :) svo ég berst við hugsanirnar, ég treysti Guði en er samt svo áhyggjufull..........æji það er flókið að útskýra á prenti.


ég hlakka til að sjá þig hjá Laufey annaðkvöld :)

knúsakrús
þín Gréta María.
01. október 2008 klukkan 23:17
Heiða Björk skrifar ...
Sæl Árný,

mig langaði bara til að senda þér þetta sem blessaði mig svo mikið um daginn af Omega

,,when you are down to nothing, God is up to something"

ég persónulega ætla hanga í þessu með íslensku þjóðina og ástandið hér. :0)

sjáumst vonandi á eftir

Heiða sól
16. nóvember 2008 klukkan 13:14
Heiða Björk skrifar ...
Sæl Árný,

heyrði þessi orð á Omega og vildi blessa þig með þeim

"when you are down to nothing, God is up to something"

kv
Heiða sól
16. nóvember 2008 klukkan 13:17
árný skrifar ...
takk fyrir heiða mín..frábær orð!
það var gaman að sjá þig áðan..nema kannski þetta með drauminn..;)
16. nóvember 2008 klukkan 19:56

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...