28júní
enn í vindáshlíð!
nú er ég að upplifa að vera 2 vikur í röð í hlíðinni..ákvað í síðasta flokki að taka þennan að mér líka..nú eru hér 79 stelpur á aldrinum 9-11 ára..algjörar dúllur sem eru mjög fljótar að hlíta reglum..:)
veðrið leikur við okkur og sem þetta er skrifað..þá eru þær að drekka mjólk og borða kryddbrauð og gulrótarköku úti..
ég skrapp aðeins í bæinn milli flokka og það er alltaf jafnskrýtið að keyra inn til reykjavíkur eftir dvöl hér í vindáshlíð..allt eitthvað svo öðruvísi..en það verður gott að koma heim eftir þennan flokk og taka sér sumarfrí..hlakka mikið til þess..vonandi helst veðrið svona gott áfram..kem heim 3 júli..
það er svosem ekkert rosa að frétta..ég er hér og dagskráin eftir því..
það hefur gengið mjög vel í þessum 3 flokkum sem ég hef tekið að mér..og ég kem ekki aftur hingað fyrr en 8 ágúst..vonandi eruð þið sem staldrið hér við hress..og ég ætla bara að segja bless! í bili..
þarna eru nokkrar af starfsstúlkum síðasta flokks..sahara rós..anna lilja..pálína og sólveig ásta..uppi á þaki í sólbaði..hlustandi á idolkeppni vindáshlíðar sem var haldin utandyra..

láttu ekki tilfinningar stjórna þér..lærðu að stjórna þeim..þá vegnar þér vel..

