25nóvember

allsendis frábær vika!

kominn tími síðan ég bloggaði síðast..verð nú að gefa mér smátíma áður en ég fer í háttinn..:)

þetta var árangursrík og meiriháttar vika og ég er þakklát í hjarta mínu þegar ég lít til baka..

við maggi kristins vorum með áheyrnarprufur fyrir krakka sl. þriðjudag og það gekk svona glimrandi vel..17 krakkar komu í prufur svo nú er úr heilmiklu að vinna..allir fengu pizzu og gos..hlakka til að setjast yfir prufurnar og velja í þau sex hlutverk sem um er að ræða..
ég brunaði svo á fókusfund eftir prufurnar..áhugaljósmyndaraklúbbur sem ég er meðlimur í..þar var gestur sem kenndi okkur að vinna með svarthvítar ljósmyndir..mjög fræðandi..við sýndum svo svarthvítar myndir eftir okkur sjálf..

samfélagshópurinn okkar var yndislegur og ljúfur á miðvikudagskvöldið..ég var heima á fimmtudagskvöld og naut þess að vera í ró og næði enda nóg um að vera í þessari viku..

föstudagurinn var pakkaður..eftir lindina skrapp ég aðeins upp í samhjálp þar sem bóndinn vinnur..spjallaði aðeins við hann og starfsfólkið áður en ég fór upp í kringlu og glæsibæ til að verlsa jólagjafir..á bara fáeinar eftir..keypti mest í ameríku..fékk mér latte að venju áður en ég rambaði í búðirnar..finnst alveg magnað að fara eins míns liðs í svona búðarferðir..
fór svo heim og bjó til 2 rétti fyrir þakkargjörðarmáltíðina um kvöldið heima hjá syni mínum..karríávexti og franskar baunir með ristuðum möndlum..vippaði mér svo yfir götuma á opið hús sem við í vinnunni héldum..og svo tilbaka til að skipta um föt fyrir þakkargjörðarveisluna..þar dvöldum við í góðu yfirlæti fram yfir miðnætti..

á laugardaginn fórum við í brúðkaup vina okkar..björns inga og önnu..þau rugluðu saman reitum í dómkirkjunni og buðu til veislu á kaffi rót..við gátum staldrað þar aðeins í stutta stund því við þurftum að drífa okkur í 180 manna kótelettukvöld hjá samhjálp..bóndinn minn er meðlimur í kótelettukúbb sem hittist mánaðarlega til að borða kótelettur að gamaldagshætti og sitthvað fleira..og halda svona kótelettukvöld einu sinni á ári til styrktar samhjálp..
kvöldið var hrikalega vel heppnað..máltíðin samanstóð af kótelettum í raspi..kartöflum..rauðkáli..grænum baunum og rabbabarasultu ásamt feiti auðvitað! á meðan á máltíðinni stóð spilaði jakob nokkur jólalög á bassa..því næst kom bubbi mortens og sló í gegn..hef aldrei heyrt annað eins hjá þessum listamanni..hann fór gjörsamlega á kostum! enda sagðist hann vera í sérstöku stuði..fannst greinilega vænt um að geta stutt þetta starf..
þá tók við ís í stríðum straumum ásamt konfekti og kaffi..happdrætti með flottum vinningum..utanlandsferðir ofl..því næst kom hljómsveitin raspararnir sem eru kótelettukallarnir sjálfir og höfðu fengið til liðs við sig session menn á bassa trommur og gítar..þeir yljuðu okkur með rokklögum sem allir þekkja..mikið stuð..
þá var bögglauppboð og safnaðist þar góður peningur og fólk fór heim með mikið af góðum varningi..en enginn vissi fyrirfram hvað í bögglunum var..
frábært kvöld..ég er fegin að ég var ekki fjarri þeirri gleði..

í morgun fórum við í sunnudagaskólann á akranesi þar sem við vorum með jólaföndur og tónlist..skruppum svo í kaffi til mágkonu minnar..hún lét mig hafa 4 mánaðarbolla í safnið mitt og gullarmband sem tengdamamma mín heitin átti..koss og knús á hana fyrir það..
svo höfum við verið heima..sofnuðum í smástund í eftirmiðdaginn og poppuðum svo í staðinn fyrir að elda..enda ennþá södd eftir gærkvöldið..:)

næsta vika lítur ljómandi vel út..mikið af skemmtilegheitum þar á ferðinni..skrifa um það næst..

hér er mynd af fyrsta snjónum þennan vetur
tók þessa mynd á leiðinni frá akranesi..

fyrsti snjórinn

gleymum ekki að hafa guð með í áformum okkar..hlýta hans leiðsögn..þá fer allt vel..
25. nóvember 2007 klukkan 23:29
Árný Jóhanns
1 athugasemd
11nóvember

reykjavík..boston..cape cod..toronto..cape cod..boston..reykjavik..

ja..heilmikið ferðalag búið að vera á okkur hjónunum sl. 2 vikur..og ég segi það með áherslu..ógleymanleg ferð með öllu..

við vorum á cape cod þar sem kirkjan okkar er í 4 daga..keyrðum svo með bestu vinum okkar þar til toronto þar sem við vorum á námskeiði og móti í 5 daga ásamt 30 öðrum íslendingum..keyrðum aftur á cape cod og dvöldum þar í 2 og hálfan dag áður en við héldum heim..

mikið var gott að breyta um umhverfi smá stund..það var búið að vera mikið álag á okkur báðum..og þessi ferð endurnýjaði okkur heldur betur..

það er eiginlega ekki hægt að lýsa dvölinni í toronto hér þannig að þið elsku fólk náið innihaldinu.."you had to be there"..get bara sagt að við hjónin höfum aldrei verið á betri ráðstefnu og höfum við farið á margar í gegnum árin..

en ferðin til cape ccod..hún var líka hressandi og lífleg..við hittum bestu vini okkar þótt stutt væri heimsóknin þar..lentum í rafmagnsleysi eftir gríðalegt rok sem gekk yfir staðinn og keyptum mikið af jólagjöfum og smá föt og skó á okkur sjálf..

það var ekki fyrr en í dag sem ég fann fyrir tímamismuninum..eftir sunnudagaskólann lagðist ég upp í sófa og svaf í nokkra tíma..við fórum líka á fullt strax eftir að við komum heim..sváfum ekkert nóttina sem við flugum hingað..lögðum okkur í 2 tíma áður en við fórum að vinna..ég tók upp úr töskunum þá um kvöldið..vann á fimmtudag og fór á samkomu um kvöldið..lindin á föstudagsmorgun..heimsókn til pabba og konu hans og beint til barnabarnanna eftir það..svaraði póstum og þvoði þvotta á laugardeginum þangað tími var til að fara í afmæli til tedda vinar okkar sem er að verða fertugur..það var skemmtilegasta afmæli sem ég hef verið í um langa hríð..biggi..héðinn..kiddi klettur og vinnufélagi tedda áttu stærsta hlutann þar..
eitt sem blessaði mig upp úr skónum..var að ásta konan hans kidda kom til mín í byrjun og sagði að það væri lambakjöt í matinn en hún væri með svolítið annað handa mér..hvílíkur kærleikur..hún veit að ég er grænmetisæta..og ég á bara ekki orð yfir að hún skyldi hugsa svona til þess! ..hún er einstök hún ásta..ég mun aldrei gleyma þessu..ég fékk þessi fínu grænmetisbuff og bætti svo öllu frábæra meðlætinu við..algjör veisla..
takk ennþá einu sinni elsku ásta mín ef þú lest þetta!

á morgun verður stífur dagur..lindin..tannlæknir..sérstök jólagjafaleit og svo er stefnumótafundur hjá okkur í vindáshlíðarstjórninni annað kvöld..

ég er að fara að hella mér út í að finna fólk í talsetningu á jesúmynd fyrir börn og klára að fara yfir síðustu seríuna af ævintýravindum..fyrir utan að æfa krakkana i skólanum fyrir helgileik sem við ætlum að sýna í lok mánaðarins..

en hvað segið þið?

mynd sem ég tók af haustveislu í nýja englandi..

haustveisla í nýja englandi..

kærleikurinn umber allt..íklæddu þig honum í dag..
11. nóvember 2007 klukkan 22:51
Árný Jóhanns
7 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...