28desember

gleðileg jól!

nú er langt síðan ég hef bloggað..enda ekki verið í forgangi hjá mér yfir hátíðarnar..sem var yndislegur tími..

ótrúlegt að jólin séu yfirstaðin..eða þannig..við á íslandi höfum jólin náttúrlega fram að þrettándanum eða 6 janúar sem er aldeilis fínt..ekki veitir af í skammdeginu..nú eru jólin búin í ameríku..allir farnir að vinna aftur á fullu..á meðan fullt af fólki hér á landi er í fríi milli jóla og nýárs..þar með talin ég..nema ég fór í 2 klst á lindina í dag..en er svo í fríi í báðum vinnum til 2 jan..og nýt þess :)

við vorum með opið hús hér á laugardaginn fyrir jól..buðum upp á heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur..
yndislegt að sjá vinina sem kíktu inn og heiðruðu okkur með nærveru sinni..

á þorláksmessu vorum við í árlegri skötuveislu hjá söru vinkonu og gísla manninum hennar og hefur aldrei verið eins margt fólk þar eins og þetta árið..um 35 manns..skatan var vel kæst var mér sagt en ég naut þess að borða ýsuna..eftir þá veislu keyrðum við út nokkra pakka..stöldruðum í kaffi hjá pabba og hittum þar bróðurdóttur mína hana ingu laufey og börnin hennar yndislegu..

á aðfangadag fórum við hefðbundinn rúnt..förum alltaf til helgu vinkonu í kaffi og líkjör..og til sonar míns og fjsk. þar sem við borðum möndlugraut og allir mega taka upp eina jólagjöf..mandlan var í mínum graut..í fyrsta sinn á ævinni held ég..og ég fékk piparkvörn í stíl við saltkvörn sem ég á í mínum jólapakka..

svo héldum við heim og undirbjuggum matinn..við vorum með rækjukokteil í forrétt..ofnsteiktan kalkún með ávaxtafyllingu..ofnbakaðar kartöflur..franskar baunir með ristuðum möndlum..ofnbakaða sæta kartöflumús með púðursykurblöndu ofan á..heitt ávaxtakompott og týtuberjasultu..sósunni má ekki gleyma en hún var sælgæti..gerð frá grunni af bóndanum..
eftirrétturinn var afgangurinn af jólagrautnum (ris a la mand) með heitri kirsuberjasósu..heimatilbúinn ís og karamellusósa var til en við snertum hann ekkert..:)
tengdapabbi var í mat hjá okkur á aðfangadag..

á jóladag var bara chillað..við gáfum hvort öðru ipod og tívolígræjur..notuðum tímann til að lóda inn allskyns tónlist..það var gaman..

annan í jólum voru sonur og fjölskylda í mat hjá okkur..hangiketi og tilheyrandi..jólaísinn og karamellusósan tekin fram svo og marsinpanbrauðið mitt..hnetur og allsk kyns gúmmulaði..

í gær vann ég stóran hluta dagsins í jesúmyndinni sem ég er að þýða og talsetja..og í dag var ég á lindinn í 2 tíma..fór svo og skipti 3 hlutum í smáralindinni..það tók tímana tvo..

jólagjafir já..þær voru flottar og fínar..
ipodinn og tívolígræjurnar frá hvort öðru..
bóndinn gaf mér þess að auki ilmvatn..tvöfaldan nóakonfektkassa..og bók..
sonur minn og frúin hans gáfu okkur dýrindis sængurverasett..hrikalega kúl og öðruvísi..og 2 spari handklæðasett..stór handlæði..lítil og þvottapoka..
krakkarnir gáfu okkur teflonhúðað sleifasett sem okkur bráðvantaði fyrir nýju pottana sem við unnum í happdrætti..
pabbi og stjúpa mín gáfu okkur sitt lítið af hverju..geisladisk..mynd..nammi..
systur lára gáfu okkur flott jólaskraut og konfekt..
helga vinkona gaf mér þrusugóða heimasokka og obboslega sæta kisulyklakippu
frá erlu guðrúnu fékk ég mega kúl buddu fyrir aurana mína..
heiðrún gaf mér andlitsmaska (notaði hann í kvöld..mmm...)
frá ingunni huld fékk ég klassa engil..
ingibjörg vinkona okkar gaf okkur bók..
inga laufey og fjsk. gáfu okkur jólakaffi og konfekt..
geisladisk frá lindinni..
frá hinni vinnunni fékk ég geisladisk..makkintos..gjafabréf í kringluna og gjafabréf í laugar..

á morgun á minns afmæli..ætla að vera heima því fólk kemur áreiðanlega og kíkir á mig.. þiggur heitt súkkulaði með rjóma og smákökur..vinn í handritinu þess á milli..:)

svo eru að koma áramót!
árið 2008 að renna í garð..sem óskrifað blað..okkar er að ákveða hvernig við skrifum á það..
göngum inn árið á loforðum guðs og væntum þess að fá að upplifa nærveru hans meir og meir..

hafðið það gott elsku fólk..
heyrumst á næsta ári!


vetrarmynd sem ég tók frá árbænum..

vetrarmynd


horfum ekki á flísina í auga náungans..tjékkum á okkar augum fyrst..kannski er þar bjálki sem þarf að fjarlægja..



28. desember 2007 klukkan 22:21
Árný Jóhanns
Engin athugasemd
05desember

jólaundirbúningur ofl..

ég er komin með nýja sýn yfir jólaundirbúning..einu sinni fannst mér alltof snemmt að byrja að skreyta og spila jólalög í byrjun desember..nú er nýtt hljóð hjá minns..

í fyrra var ég á síðustu stundu með allt og naut ekki jólanna sem skyldi vegna þess..
í ár ákvað ég að það skyldi ekki gerast aftur og hugsaði þennan tíma upp á nýtt..

þegar ég var lítil..var jólatréð og húsið skreytt á þorláksmessu..þannig var það bara í den..en..þá var ekki þessi hraði og stress á ferðinni eins og núna..

ef maður ætlar að njóta friðarjóla í dag..þá þarf maður að byrja miklu fyrr á öllum jólaundirbúningi..enda..er það rétt eins og margir segja..lýsum upp skammdegið með jólaljósum og allskyns seríum úti og inni..af hverju ekki? vera búin að skreyta og kaupa jólagjafir þegar aðventan byrjar..
þá getur maður notið desember mánaðar og gengið inn í fögnuð jólanna án stress..boðskapur jólanna getur hæglega orðið undir þegar allt á eftir að gera á síðustu stundu..

þetta verður í fyrsta skipti sem ég geri þetta og ég hlakka svo mikið til jólanna núna þegar ég er búin að skreyta og kaupa jólagjafir til að gleðja mína nánustu..ég finn að ég get andað djúpt..vitandi að ég verð ekki á seinustu stundu..tíminn líður nefnilega svo óskaplega hratt að maður heldur varla í við hann!

það hefur verið mikið um að vera síðan síðast..
hitti svönu vinkonu mína á a mokka sl. mánudag áður en ég fór á maraþon stjórnarfund í 3 og hálfa klst..

á þriðjudagskvöldið hitti ég flickr vinkonurnar og það var svo gaman að hafa ágústu frænku mína og vinkonu með..hún er farin að ljósmynda á fullu og komin með síðu á flickr..við vorum um 15 talsins og hittumst heima hjá einni sem opnaði ljósmyndasýningu á thorvaldsenbar sl. laugardag..

á fimmtudaginn var starfsmannafundur í vinnunni..ég get ekki lýst því hvað vinnufélagar mínir eru frábærir..við erum 9 talsins og það er svo mikil eining og vinátta á milli allra..reyndar erum við..ég og yfirmaður okkar aldursforsetar..restin er um tvítugt..:)
jólalögin hljómuðu hjá mér á lindinni á föstudagmorgun í fyrsta sinn þetta árið..gaman að spila þau..spjallaði við gunnildi hans arons hinriks á selfossi ..hún gaf okkur einfalda uppskrift af sörum og sagði okkur frá fyrirhugaðri ferð til indland yfir jólin..mjög skemmtilegt viðtal við hana..
svo var jólakaffi hjá okkur í vinnunni fyrir fjölskyldur og vini barnanna..við sýndum loksins jólaleikritið sem ég er búin að vera æfa með 2 og 3 bekk í margar vikur..oft hef ég hugsað hvernig í ósköpunum sýningin yrði..þau voru oft með svo mikið vesen á æfingum..en ég er farin að gera mér grein fyrir því að þegar leiksýningin er..gefa þau allt í hana..þá kemur það fram sem ég er búin að punda í þau á æfingum..þetta tókst með glæsibrag..það var svo mikið af fólki sem kom að við þurftum sífellt að bæta við stólum og borðum..börnin þurftu að sitja á gólfinu..
ein starfsstúlkan sem er að læra söng var búin að æfa kór sem krakkar úr 1 bekk tóku þátt í og þau voru alveg yndisleg!

laugardagurinn var aldeilis skemmtilegur..þá var opnun flickr ljósmyndasýningarinnar í ljósmyndasafni reykjavíkur..við sóttum pabba og stjúpu mína..en pabbi átti afmæli og fannst voða gaman að fara á sýninguna..
aðsóknin á þessa opnun sló met í þessum sal..það hefur aldrei komið jafn margt fólk á opnun sýningar..enda ákvað ég að fara seinna til að skoða allar þessar mögnuðu myndir því það var ómögulegt að skoða þær yfir herðar og hausa..
ég var mjög ánægð með myndina mína.."íslensku skógardísina"..og mikill heiður að fá að vera með..
ég þekkti svo margt fólk þarna..margir ljósmyndarar sem maður er farin að kynnast voru á staðnum..ótrúlega skemmtileg upplifun..
svo fórum við í afmæliskaffi heima hjá pabba og þangað komu svo sonur minn og tengdadótir ásamt yngsta barninu sínu..hún kom svo heim með okkur og gisti..

sunnudagaskólinn var á sínum stað á akranesi að venju..ég var í sérstaklega miklum ham sem "engilráð önd"..en venjulega improvisera ég með hana..flýttum okkur svo heim með rebekku lind því hún var að fara á æfingu í seljakirkju..er nefnilega í barnakór þar..
ég fór svo í aðventumessuna og hlustaði á börnin syngja og prestinn fara með alveg ágæta ræðu..

þar til næst elsku vinir..bið ég guð að blessa ykkur upp úr skónum..en hann er einmitt að snerta svo marga..maður er orðinn mjög þyrstur eftir meiri nærveru hans..

fyrsti snjórinn um daginn..

vetur

verum miskunsöm við náunga okkar..og hugleiðum hvað miskun er..





05. desember 2007 klukkan 00:15
Árný Jóhanns
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...