09janúar

hækkandi sól!

mikið er gott til þess að vita að nú er daginn farinn að lengja..

mér finnst alltaf þegar áramótin eru búin..svo stutt til vorsins og þakka það birtunni sem kemur meir og meir..
ekkert er eins yndislegt og vorið sem kemur með líf og grænku..

áramótin liðu framhjá okkur ljúflega..við vorum heima í fyrsta sinn í síðan ég veit ekki hvað..en fórum svo á stjá eftir kl. 12:30 þegar við vorum búin ásamt nágrönnum okkar að horfa nægju okkar á flugelda..heimsóttum son okkar og fjsk. og brunuðum svo í boð í hafnarfjörðinn..
lagst var í rekkju um 4:30..

ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og að draumar ykkar og þrár mættu rætast..

nú er allt komið á flug aftur..vinnan í skólanum og extra vinna þar þessa vikuna þar sem yfirmaður minn er í svíþjóð og ég er að vinna fyrir hana..og svo er allt á útopnu með jesúmyndina..

ég brá mér þó í ljósmyndaferð með 11 öðrum konum sem eru á flickr ljósmyndasíðunni eins og ég..
við skruppum að kleifarvatni og áttum þar frábæran tíma við myndatökur í bæði dagsbirtunni og ljósaskiptunum..

í kvöld byrja samkomur mózaík að nýju í háborg..samhjálparhúsinu sem er við stangarhyl..hlökkum við mikið til..ekki ætlum við að auglýsa alveg strax..en litli hópurinn sem hefur verið að hittast komum saman ásamt þeim sem heyra um samkomuna því auðvitað eru allir meira en velkomnir! Byrjar kl. 20:00 ef einhver vill kíkja..

annars er bara allt fínt að frétta..og vonandi af þér líka..:)

er að hlaupa í vinnuna..
bæ í bili..


ein myndanna sem ég tók við kleifarvatn..

kleifarvatn

lifðu lífinu lifandi!
09. janúar 2008 klukkan 12:43
Árný Jóhanns
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...