28júní
júní að klárast..
jæja gott fólk..kominn tími á nýja bloggfærslu..það má streyma mikið þakklæti frá hjörtum íslendinga fyrir veðurfarið sem hefur verið undanfarið..þetta er nánast einsdæmi að fá svona marga sólardaga í löngum bunum!
þegar ég vaknaði í morgun heyrði ég vindinn gnauða og sá fyrir mér úfinn sjóinn (sé hann út um gluggana á bakhlið hússins) og gráleitan dag miðað við þá síðustu..en nei nei..sólin skín skært þó að íslenska rokið hafi vaknað upp á gátt..og svo segi ég eins og útlendingarnir sem eru með sólina í svona löngum bunum..það mætti alveg rigna á nóttunni..gróðurinn þarf að fá sinn skammt af vatni..ég hef veirð dugleg við að hlaupa á milli í garðinum og vökva blessaðar plönturnar..þær eiga það svo skilið þar sem þær gleðja augu manns í skrúðanum sem skaparinn klæddi þau í..
sl. sunnudag var lári minn að predika á tveimur samkomum fyrir austan..á selfossi og í kotinu.það voru magnaðar samkomur..orðið var hrein opinberun..
eins og á stykkishólmi..þá er guð að úthella vakningunni sinni yfir landið okkar þeir sem þrá vakninguna..sækjast eftir henni og fá að snerta hana og nærveru guðs..
nú byrja fjölskyldusamkomur í mozaik í haust..og þá fer í gang kröftugt barnastarf..kvennastarf fer í gang mjög fljótlega...við verðum líka með sóking og lækningastundir..unglingastarf..allskonar námskeið og skóla..húsið verður sko notað til hins ýtrasta þegar haustið kemur..reyndar byrjar námskeið í júlí og það verða námskeið í hverjum mánuði..við ætlum sko ekki að farast úr þekkingarleysi!
nú er í gangi mikið gospel festival í hafnarfirði...gaman að heyra margskonar tónlistarstefnur..
spurning hvort þetta sé ekki svolítið langur tími.. 10 dagar..því miður fara sumir tónlistarmenn með þá minningu að örfáir íslendingar hafi komið til að hlusta á þá..þannig var það allavega í gærkvöldi..mér leið eiginlega illa fyrir þeirra hönd..
mozaik verður með lofgjörðartónleika í víðstaðaskóla á morgun sunnudaginn 29 júní kl. 15:00..það væri gaman að sjá ykkur sem flest..við ætlum að lofa guð af öllu hjarta.
svo er eitt gleðiefni..mozaik verður með á menningarnótt..í tengslum við reykjavíkurborg..verðum með fjölskylduhátíð um daginn og lofgjörðartónleika um kvöldið..ég segi frá því betur þegar meira skipulag er komið á þetta..þið getið líka fylgst með á facebook..þið sem eruð þar..við erum búin að setja upp síðu undir mozaik..
þar er linkur hægra megin á síðunni sem tekur ykkur inn á upplýsingar um samkomur og öðru sem er á döfinni hjá okkur..
næsta miðvikudagskvöld 2 júlí kl. 20:00 verðum við með góðan gest sem margir íslendingar þekkja á samkomunni..michael cotten..hann hefur spámannlega þjónustu og við hlökkum til að heyra hvað guð hefur lagt honum á hjarta..
á síðustu samkomu í mozaik þá gerðist það eins og á flestum öðrum samkomum..að fólk læknaðist í lofgjörðinni..ég veit um 2 menn sem áttuðu sig á því að þeir voru heilir af meinum sínum eftir að við báðum lækninarbænina saman.! kannski voru fleiri sem læknuðust en við fáum oftast vitnisburð þeirra á næstu samkomu..guð er að vinna svo stórkostlega hluti..hvað gerir hann næst?!!!! ég vil ekki missa af neinu!
og nærvera hans er ekki bara á samkomum...stundum er hún svo sterk hér heima þegar ég er ein að lofa hann..og í vikunni vorum við boðin í mat hjá nýjum vinum í kirkjunni..við báðum saman áður en við fórum heim og nærvera guðs kom svo að ég stóð varla í lappirnar og hló alla leið heim! ekkert smá drukkin..enda stendur skýrt í biblíunni að við eigum ekki að drekka okkur drukkin af víni..heldur fyllast heilögum anda..og ég get sagt ykkur að sú upplifun er miklu betri og engir timburmenn daginn eftir

ég spyr mig..eru þeir tímar að koma þar sem guð er að fylla jörðina af sinni dýrð? sá tími kemur náttúrlega einvhern tímann..guð er búin að segja það í orðinu sínu..
over and out í bili..
þessa mynd tók ég í stykkishólmi af lítilli vinkonu..

lifum í andanum..þá fullnægjum við ekki verkum holdins..
